Rólegt umhverfi
Við gefum okkur tíma, höldum hávaða í lágmarki og lesum í hundinn. Stressaður hundur fær aldrei góða snyrtingu.
Lærðir hundasnyrtar í Mosfellsbæ. Rólegt umhverfi, mild efni og feldur sem helst fallegur milli heimsókna.
Í Kjarna, miðbæ Mosfellsbæjar.
Með reynslu úr sýningarsnyrtingu.
Vottaðar vörur, valdar eftir feldgerð.
Af hverju Dillirófa
Við gefum okkur tíma, höldum hávaða í lágmarki og lesum í hundinn. Stressaður hundur fær aldrei góða snyrtingu.
Hjá okkur starfa menntaðir hundasnyrtar með margra ára reynslu, meðal annars úr snyrtingu fyrir hundasýningar.
Við notum Iv San Bernard, ítalskar vörur með Safe Pet Cosmetics vottun, valdar eftir feldgerð hvers hunds.
Allar 12 umsagnirnar á Facebook-síðunni okkar eru jákvæðar. Lestu þær á Facebook.
„Rólegt og yfirvegað andrúmsloft sem hentar vel stressuðum hundum. Muse og Soul eru svo fínar eftir spa dag á Dillirófu.“
Gerður Ólafsdóttir Umsögn á Facebook
„Mæli klárlega með konurnar í Dillirofa. Fagmennska í hámarki. Sanngjarnt í verði.“
Sonja Rose Umsögn á Facebook
„Vönduð og alúðleg þjónusta. Hundur og húsbóndi mæla með.“
Sindri Valdimarsson Umsögn á Facebook
Algengar spurningar
Finnurðu ekki svarið? Hringdu í 792 2019 eða sendu okkur línu.
Bað, blástur, greiðsla, klipping eða rakstur og klóaklipping. Fyrir stærri hunda er líka hægt að bóka bað og blástur eitt og sér, án klippingar.
Þá þarf að bóka flókagreiðslu sérstaklega, og gjaldið leggst ofan á önnur gjöld. Við greiðum úr flækjunum í stað þess að raka feldinn niður þegar það er hægt.
Athugið að við tökum ekki að okkur að reita.
Skrifaðu nafn og tegund hundsins í athugasemdaboxið þegar þú bókar. Þannig getum við gefið réttan tíma og undirbúið okkur fyrir heimsóknina.
Um 60 mínútur fyrir hunda undir 10 kg, 100 mínútur fyrir 10 til 25 kg og um 110 mínútur fyrir hunda yfir 25 kg. Flókagreiðsla bætir um 60 mínútum við.
Afbókanir og tilfærslur þurfa að berast með minnst 24 klukkustunda fyrirvara. Sé afbókað með skemmri fyrirvara en 24 klst. greiðist 50% af verði tímans, og með skemmri fyrirvara en 2 klst. greiðist fullt verð.
Ekki er hægt að afbóka með SMS. Notaðu Noona appið eða hringdu í 792 2019.
Verð fer eftir stærð hundsins, feldgerð og ástandi feldsins. Nákvæmt verð fyrir hverja þjónustu sést í bókunarkerfinu áður en þú staðfestir tímann.